asi.is  -  Vinnan fréttavefur  -
 
Vinnan.is
Vinnan tímarit
Úrval greina
Fréttaskvetta
Upplýsingarit ASÍ
Ráðstefnur ASÍ - efni
Verðlagseftirlit ASÍ
 
 
6.4.2006
Er verðbólgan komin til að vera?

Spá Hagdeildar ASÍ um þróun helstu hagstærða á þessu ári og því næsta markast af miklu ójafnvægi og óvissu í efnahagslífinu. Gengissveiflur eru miklar, viðskiptahalli í sögulegu hámarki, einkaneysla mikil og fjárfestingar miklar.

Samt sem áður gerir spáin ráð fyrir að hagvöxtur á yfirstandandi ári og því næsta verði ágætur og að atvinnuleysi verði

lítið. En spáð er mikilli verðbólgu sem verður, ef spáin gengur eftir, langt yfir efri vikmörkum Seðlabankans, bæði í ár og á því næsta. Allar líkur eru því á að kjarasamningar verði í uppnámi þegar líður á árið.


Það er launafólk sem líður fyrir mistök í hagstjórninni. Það kann að vera gleðiefni til skamms tíma þegar allir fá allt strax; miklar stóriðjuframkvæmdir og mikil umsvif hins opinbera, samhliða miklum skattalækkunum. Fylgifiskurinn er aukin verðbólga, háir vextir, of sterkt gengi og vaxandi skuldir heimilanna. Þegar upp er staðið þá skiptir stöðugleikinn meginmáli fyrir almenning. Þannig tekst okkur að byggja upp varanlegan kaupmátt og sterkara atvinnulíf.


Núverandi hagstjórn þar sem ríkisfjármálin styðja ekki við aðgerðir Seðlabankans leiðir til of hárra vaxta og gengis. Slík hagstjórn dugar ekki til að treysta og undirbyggja nauðsynlegan stöðugleika. Sveiflur í afkomuskilyrðum fólks og fyrirtækja eru of miklar til að það geti samrýmst meginmarkmiðum stöðugleikastefnunnar. Framvinda efnahagsmála í þeirri óvissu sem nú ríkir mun því ráðast mikið af trúverðugleika hagstjórnarinnar næstu mánuði og misseri.

 


  Sjá nánar mynd

 

Sjá skýrslu í heild sinni á pdf formati



 

Til baka
 
 
 
Endurskoðun kjarasamninga



Reiknivél vegna lækkaðs  matvælaverðs 1. mars 2007

Reiknivél vegna lækkaðs matvælaverðs 1. mars 2007

Material in english

Material in english

Félagsmálaskólinn

Félagsmálaskólinn

Vinnuréttur

Vinnuréttur

Allt um fæðingarorlof

Allt um fæðingarorlof

Listasafn ASÍ

Listasafn ASÍ

Ráðningarsamningur

Ráðningarsamningur

Gagnlegir tenglar

Gagnlegir tenglar

Alþýðusamband Íslands - Sætún 1 - 105 Reykjavík
sími: 53 55 600 - fax: 53 55 601