Hagspá Hagdeildar ASÍ fyrir árin 2007 og 2008 gerir ráð fyrir að við lok núverandi stóriðjuframkvæmda nái hagkerfið mjúkri lendingu sem felur í sér að ekki verður harkalegur samdráttur þó verulega hægi á. Aðlögunin að jafnvægi er hins vegar alls ekki sársaukalaus því kaupmáttur margra dregst saman og gjaldþrotum fjölgar. Á árinu 2007 verður hagvöxtur lítill og atvinnuleysi eykst. Þá mun gengið veikjast, stýrivextir lækka samhliða lækkandi verðbólgu og draga úr viðskiptahallanum.
Spáin gerir ráð fyrir að hagkerfið verði fljótt að jafna sig. Strax á árinu 2008 verður hagvöxtur ágætur, verðbólga hófleg, stýrivextir lægri og gengið stöðugra. Samkvæmt spánni nær hagkerfið jafnvægi á árinu 2008 eftir mikið ójafnvægi liðinna ára. Hagdeildin hefur einnig skoðað hvaða áhrif það hefði á hagkerfið að hefja frekari stóriðjuframkvæmdir í beinu framhaldi af núverandi framkvæmdum. Niðurstaðan er sú að fái hagkerfið ekki að jafna sig áður en ráðist er í nýjar framkvæmdir kalli það á áframhaldandi ójafnvægi næsta áratuginn. Því fylgir mikil verðbólga, háir vextir og miklar gengissveiflur. Við slíkar aðstæður þrengir mjög að launafólki, sprotafyrirtækjum og fyrirtækjum í útflutnings- og samkeppnisgreinunum.
Sjá skýrslu Hagdeildar í heild sinni |